
Opna ætti á að nýta hvatapeninga fyrir styttri námskeið s.s. sumarnámskeið. Þannig er hægt að ná til barna sem ekki eru í skipulögðu íþróttastarfi yfir veturinn. Einnig fá börn þá að prófa fleiri íþróttir og þá meiri líkur á að þau finni sig í einhverri íþrótt. Sumar íþróttir og námskeið eru mest á sumrin s.s. hestamennska, siglingar, náttúrulífsnámskeið, hjólreiðar og fjallamennska. Það að binda styrkt námskeið við 10 vikur mismunar íþróttagreinum og dregur úr valmöguleikum fyrir börn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation