
Setja upp tennisaðstöðu í Garðabæ sem er opið fyrir almenning. Tennissíþróttin er mjög vinsæl út um allan heim og er sífellt að ná meiri vinsældum á Íslandi. Það skiptir máli að fjölskyldur geti spilað tennis án þess að borga stórfé fyrir vellina. Garðabær hefur verið mjög duglegt að setja upp íþróttaaðstöðu fyrir aðrar íþróttir eins og blak, golf, siglingar eða fótbolta. Það er komið að því að sýna jafnræði og skapa einnig tennisaðstöðu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation